Gistiaðstaðan sem er ætluð íþróttamönnum á Asíuleikunum sætir mikilli gagnrýni forsvarsmanna sumra þeirra ríkja sem taka þátt. Keppni hefst í þessari viku og eiga keppendur að gista á hótelum, í skemmtiferðaskipum og í bráðabirgðaaðstöðu í færanlegum gámum.Þetta vekur hörð viðbrögð. Jung Jae-yong, varaformaður Körfuknattleikssambands Suður-Kóreu, sagði að aðstaðan sem leikmönnum hans væri ætluð væri ekki boðleg. „Miðað við mína reynslu er þetta það versta sem nokkru sinni hefur verið boðið upp á.“Hann sagði að íþróttamenn sem væru meira en tveggja metra háir gætu ekki teygt úr sér í rúmum sínum. Það getur því verið þröngt um körfuboltakappa sem oft eru með hávaxnari mönnum.Einn leikmannanna birti myndband af lekum vaski og gólfi á floti með orðunum: „Vinsamlegast hjálpið okkur.“Yfirmenn in