Þessir belgísku ferðamenn þurftu að yfirgefa íbúð í Benalmadena á Costa del Sol á föstudaginn vegna yfirvofandi hættu af völdum skógarelda.EPA / JORGE ZAPATAÞrír slösuðust í skógareldum nærri Costa del Sol-ströndinni á Spáni í gær, þar af er einn með alvarlega brunaáverka.Eldarnir kviknuðu í fjalllendinu við Benhavis og breiddust þeir hratt úr vegna vinda. Um 50 íbúar þurftu að yfirgefa heimili sín í Benhavis en ekkert eignartjón varð í skógareldunum.Yfirvöld sendu út viðvörun til 9.500 íbúa og ráðlögðu fólki að halda sig heima af öryggisástæðum. Enn er mikil hætta á skógareldum á Spáni. Hæsti hiti ársins, 45,7°c, mældist í El Granado í Andalúsíu 2. september.Samkvæmt upplýsingakerfi um evrópska skógarelda hafa 296.000 hektarar landsvæðis brunnið í skógareldum á Spáni á þessu ári.