Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku banka

Jón Birgir Jónsson hefur verið ráðinn sem forstjóri Kviku banka hf. Hann tekur til starfa 1. desember og tekur þá við af Ármanni Þorvaldssyni sem tilkynnti fyrr á árinu að hann hygðist láta af störfum sem forstjóri bankans.Í fréttatilkynningu sem send var á fjölmiðla segir að Jón Birgir búi yfir yfirgripsmikilli reynslu af alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Hann hefur starfað stærstan hluta starfsferils síns erlendis, hjá Neuberger Berman í London og J.P. Morgan Asset Management í New York og London sem eru tvö stærstu eignastýringarfyrirtæki heims.Jón Birgir lauk grunnnámi í stærðfræði við Háskóla Íslands og framhaldsnámi í fjármálaverkfræði við New York University. Hann hefur starfað lengi erlendis en haldið tengslum við íslenskt atvinnulíf, meðal annars sem stjórnarmaður í Bresk-íslenska við
Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku banka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd