Gríðarlega mjótt á munum í kosningunum í Svíþjóð

74% atkvæða í sænsku þingkosningunum sem fóru fram í dag hafa verið talin og staðan gæti varla verið jafnari. Rauða blokkin leiðir enn með einum þingmanni, 175 gegn 174 þingmönnum bláu borgaralegu blokkarinnar.Í ljósi þess hve mjótt er á munum má leiða líkur að því að úrslit muni ekki liggja fyrir í nótt, jafnvel ekki fyrr en í næstu viku þegar öll atkvæði hafa verið talin.„Utankjörfundaratkvæði sem voru greidd seint og atkvæði frá útlöndum verða ekki fulltalin fyrr en á miðvikudag eða fimmtudag,“ hefur SVT eftir Lars Aden Lisinski, fjölmiðlafulltrúa hjá sænsku kosningastjórninni.Bæði Ulf Kristersson, leiðtogi Moderaterna og forsætisráðherra Svíþjóðar, og Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmanna, halda sig til hlés á kosningavökum sínum og hafa enn hvorki tjáð sig um stöðuna né haldið r
Gríðarlega mjótt á munum í kosningunum í Svíþjóð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd