Valskonur aftur á beinu brautina með sigri gegn ÍBV

Valur vann 31-27 sigur gegn ÍBV í efstu deild kvenna í handbolta í kvöld. Valur var sterkari aðilinn nær allan leikinn og leiddi lengst af með fjögurra marka mun í fyrri hálfleik.Valskonur eru Íslandsmeistarar og máttu þola nokkuð óvænt tap gegn nýliðum Selfoss í fyrstu umferð.Valskonur komust í sjö marka forskot þegar lítið var eftir. Að lokum vannst öruggur fjögurra marka sigur, eftir að heimakonur höfðu slakað örlítið á klónni undir lok leiks.Sandra Erlingsdóttir leiddi sóknarleik ÍBV með sex mörk og Andrea Jacobsen var með fimm. Guðrún Hekla Traustadóttir fyrir Valskonum með átta mörk en Auður Ester Gestsdóttir kom þar á eftir með sex mörk.Bæði lið eru með tvö stig að tveimur umferðum loknum.
Valskonur aftur á beinu brautina með sigri gegn ÍBV

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd