Kattholt og Kattavinafélag Íslands fögnuðu samtals 85 ára afmæli í dag, en Kattholt hefur verið starfrækt í 35 ár og Kattavinafélag Íslands í 50 ár.Það var margt um manninn – og köttinn – í afmælisveislunni sem haldin var í húsnæði Kattholts í Stangarhyl í Reykjavík. Boðið var upp á vöfflur og afmælisköku, og andlitsmálningu fyrir börn sem fullorðna.Kristbjörg Lúðvíksdóttir, aðstoðarrekstrarstjóri Kattholts, segir að árlega komi Kattholt 200 til 300 köttum til bjargar. Þá rekur Kattholt einnig kattahótel fyrir ketti sem þurfa pössun þegar eigendur eru fjarverandi.En hvað er mikilvægast að hafa í huga þegar maður tekur að sér kött? „Það er mikilvægast að hafa gott fóður, góða vatnsskál, góðan kattasand og allt tilbúið, hafa rólegar aðstæður, hafa smá næði,“ segir Andrea Björk Hannesdóttir,