Forskot rauðu blokkarinnar minnkar í nýrri spá sænska ríkisútvarpsins SVT. Í útgönguspá SVT fyrr í kvöld var rauða blokkin með 51,3% atkvæða en er nú komin í 49,1%. Þar með munar aðeins einum þingmanni á rauðu og bláu blokkinni.Aðeins 20 þúsund atkvæði skilja blokkirnar að samkvæmt spánni. Næstum átta milljónir Svía höfðu kosningarétt í dag. Búið er að telja 65% atkvæða.Í ljósi þess hve mjótt er á munum má leiða líkur að því að úrslit muni ekki liggja fyrir í kvöld, jafnvel ekki fyrr en í næstu viku þegar öll atkvæði hafa verið talin.„Utankjörfundaratkvæði sem voru greidd seint og atkvæði frá útlöndum verða ekki fulltalin fyrr en á miðvikudag eða fimmtudag,“ hefur SVT eftir Lars Aden Lisinski, fjölmiðlafulltrúa hjá sænsku kosningastjórninni.Þingkosningunum í Svíþjóð lauk klukkan átta í kvö