Meena Geltink og Minal Tijssen eru báðar fæddar snemma á níunda áratugnum í Mumbai á Indlandi. Þær voru ættleiddar af tveimur mismunandi barnaheimilum, þegar þær voru aðeins nokkurra mánaða gamlar af sitthvorum foreldrunum.Þær bjuggu skammt frá hvor annarri fyrstu æviárin í Hollandi án þess að vita af tilvist hinnar en kynntust sem unglingar á viðburði á vegum ættleiðingarstofunnar sem foreldrar þeirra notuðu.Líkindi þeirra bæði í fasi og útliti voru óneitanleg og margir aðrir á viðburðinum höfðu orð á því. MISSTU SAMBANDIÐ Í 15 ÁR Stúlkurnar náðu vel saman, skiptust á símanúmerum og netföngum og þar með hófst áralöng vinátta. Þær skrifuðust mikið á og gátu rætt allt milli himins og jarðar og ávörpuðu gjarnan hvor aðra sem systur. En fyrir 15 árum misstu þær sambandið. Minal flutti til