Útgönguspár SVT og TV4 í Svíþjóð um úrslit þingkosninga þar í landi sýna naumt forskot fylkingar Magdalenu Anderson, formanns Sósíaldemókrata. Hún og núverandi forsætisráðherra Ulf Kristersson, formaður Moderaterna, berjast um forsætisráðherrastólinn. Svíþjóðardemókratar tapa fylgi miðað við skoðanakannanir síðustu daga.