Leigja út sendiherrabústaðinn fyrir rúma milljón á mánuði

Utanríkisráðuneytið hefur frá upphafi árs leigt út fyrrum embættisbústað íslenska sendiráðsins í Ósló. Í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu segir að írska sendiráðið í Ósló hafi haft embættisbústaðinn til leigu frá því í janúar. Það er gert vegna endurbóta sem standa yfir á þeirra embættisbústað.Leigutímabili írska sendiráðsins lýkur í lok þessa mánaðar. Það hefur greitt 85 þúsund norskar krónur á mánuði í húsaleigu sem er rúmlega 1,1 milljón íslenskra króna. Þess má geta að sendiherra Írlands í Ósló er einnig sendiherra landsins gagnvart Íslandi.Embættisbústaðurinn sem stendur við Langviksveien á Bygdøy hefur verið á sölu frá því á fyrri hluta síðasta árs. Ásett verð er 65 milljónir norskra króna. Það samsvarar nærri 850 milljónum íslenskra króna. Frá því að eignin va
Leigja út sendiherrabústaðinn fyrir rúma milljón á mánuði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd