Þingkosningunum í Svíþjóð lauk nú klukkan 18 þegar kjörstöðum var lokað.Samkvæmt útgönguspám er afar mjótt á munum. Rauða blokkin hefur forystu með 51,3% en bláa blokkin mælist með 47%. Sem stendur er því útlit fyrir að fjögurra flokka bandalag núverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, Ulfs Kristerssons, á hægri vængnum, séu á leið úr ríkisstjórn. Horft var til þess hvort Frjálslyndi flokkurinn myndi fá nægt fylgi til að ná mönnum inn. Það virðist hafa tekist en hefur þó ekki dugað til. Þar munar um að Svíþjóðardemókratarnir hafa tapað fylgi frá síðustu könnun og eru nú svipaðir að stærð og Moderaterne.Eins og staðan er núna er útlit fyrir valdaskipti í Svíþjóð en það er þó ekki alveg öruggt. Stjórnmálaskýrendur í Svíþjóð hafa sagt að það yrði erfitt fyrir flokkana í bláu blokkinni að snúa þes