Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Úkraínumenn hætti árásum á olíuinnviði í Rússlandi. Hann segist hafa átt samtal við Volodymyr Zelensky forseta Úkraínu þess efnis.Úkraínumenn hafa á þessu ári sett aukinn þunga í árásir sínar á olíuinnviði í Rússlandi.Trump segir árásirnar valda skorti á olíu og þar af leiðandi hafa neikvæð áhrif á aðrar þjóðir. Þær séu meginorsök olíuþurrðar í heiminum og hækkandi olíuverðs, ekki átök í Mið-Austurlöndum.Árásir Bandaríkjanna á Íran á þessu ári hafa haft talsverð áhrif á olíuflutninga í heimshlutanum. Átök ríkjanna hafa borist í Hormússund en vanalega fer um fimmtungur af olíubirgðum heimsins um það.Þá skrúfuðu Sádi-Arabar á dögunum fyrir mikilvæga olíuleiðslu sem um 4-5% af olíu heimsins fer alla jafna um, eftir drónaárás sem tók á loft frá Írak.