Mývargurinn gerir mönnum erfitt fyrir í smölun

Sigmundur Hreiðarsson, sláturhússtjóri Kjarnafæðis Norðlenska á Húsavík, segir að í ár verði slátrað ívið fleiri fjár heldur en í fyrra eða rúmlega 89 þúsund. Sláturtíðin fer þó rólega af stað. Sláturhúsið á Húsavík er eitt af fjórum stærstu sauðfjársláturhúsum landsins.Samkvæmt heimildum Bændablaðsins er örlítil fækkun sláturfjár í ár hjá KS í Skagafirði, á meðan Fjallalamb á Kópaskeri bætir í. Sláturfélag Suðurlands á Selfossi er með svipaðan fjölda og í fyrra eða um 100 þúsund fjár.Sigmundur sagði í samtali við fréttastofu að sláturtíðin færi ágætlega af stað þó að brösulega gengi að ná fé inn til slátrunar. Helstu orsakir þess væru veðrið og mývargurinn sem gerði mönnum erfitt fyrir. Hann segir þó að sláturtíðinni verði lokið fyrir 10. október og ef þörf krefur verði líka slátrað um he
Mývargurinn gerir mönnum erfitt fyrir í smölun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd