Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að boðaðar gjaldskrárhækkanir ríkisins gætu orðið minni en áður hafði verið tilkynnt, gangi þríhliða viðræður við aðila vinnumarkaðarins vel.Krónutöluhækkanir ríkisins fylgja rúmlega 5 prósent verðbólgu en ekki verðbólgumarkmiðum sem eru 2,5 prósent. Hækkanirnar hafa hlotið talsverða gagnrýni, einkum frá aðilum vinnumarkaðarins.Kristrún var gestur Páls Magnússonar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þar sagði hún krónutöluhækkanir ríkisins hafa verið meðal þess sem hefði verið rætt í þríhliða viðræðum vinnumarkaðarins í sumar. Þau samtöl væru uppbyggilegri en oft virtist út á við.Kristrún segir ákvörðun hafa verið tekna í þeim viðræðum um að bíða fram á haust með að sammælast um aðgerðir. Þau væru því enn í ákveðnum viðræðum um viðmið gjaldskrá