Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýnir talsmenn þess að hægja á þróun gervigreindar. Mestu máli skipti að Bandaríkin sigri gervigreindarkapphlaupið en ekki Kína.Dario Amodei, forstjóri gervigreindarfyrirtækisins Anthropic, hefur óskað eftir að fyrirtæki í gervigreind taki saman höndum og hægi á þróun tækninnar. Elon Musk, stofnandi xAI, og Sam Altman, forstjóri OpenAI, hafa tekið undir þau orð. Amodei vill til að mynda óháð eftirlit með þróun tækninnar og samhæfingu reglugerða þvert á iðnaðinn og á heimsvísu.Bretinn Jacob Coxon hefur starfað við þróun gervigreindar hjá bæði OpenAI og Anthropic, sem standa að baki forritunum ChatGPT og Claude. Hann sagði starfi sínu lausu hjá Anthropic í vikunni vegna ábyrgðarleysis stjórnenda fyrirtækisins.Í viðtali við BBC segir Coxon það engar ýkjur að