Stemmingin var sérstaklega góð í Tungnaréttum í gær, allir í hátíðarskapi og mikið spjallað saman og hlegið. Vel gekk að reka féð inn í almenninginn og að draga það í dilka. Um fjögur þúsund fjár var í réttunum úr Biskupstungunum.Rússajeppninn frá Tjörn vekur alltaf athygli í réttunum en hann er árgerð 1975 og var notaður í mörg ár sem skólabíll. Í dag er hann fyrst og fremst nestis og kaffibíll í réttunum.Fjölbreyttur hópur fólks á öllum aldrei mætir í réttir og hefur alltaf jafn gaman af. Söngur er stór hluti af réttarstemmingunni og Brynjar Sigurðsson á bænum Heiði sá um að stýra söngnum.