Kjördagur er runninn upp í Svíþjóð. Útlit er fyrir spennandi þingkosningar þar sem afar mjótt er á munm í skoðanakönnunum.En það eru ekki bara stjórnmálamenn sem vekja athygli á lokaspretti kosningabaráttunnar. Benny Andersson, einn liðsmanna ABBA, mætti á samkomu Jafnaðarmanna með nýja útgáfu af laginu Mamma Mia tileinkaða Magdalenu Anderson, leiðtoga flokksins.Benny minntist á að hann hefði spilað fyrir bæði Olof Palme og Önnu Lind, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, og vildi þá spila fyrir Magdalenu Andersson líka.Sjón er sögu ríkari.