Rafmagnslaust er í hluta Ásbrúar í Reykjanesbæ vegna bilunar. HS Veitur greina frá rafmagnsleysinu í tilkynningu.Þar segir að unnið sé að því að koma rafmagni aftur á eins fljótt og auðið er. „Það kom upp bilun í dreifistöð hjá okkur sem er verið að gera við,“ segir Sigrún Inga Ævarsdóttir. Áætlað er að það taki um 20-30 mínútur.