Uppbygging laxeldisiðnaðar í Seyðisfirði snýst um fyrirtækjarekstur – ekki vöxt samfélagsins að mati formanns félagsins Vár sem beitir sér gegn komu laxeldis í fjörðinn.Á föstudag var greint frá því að fyrirtækið Kaldvík hefði fengið rekstrarleyfi fyrir tíu þúsund tonna laxeldi í Seyðisfirði. Áform um eldi á svæðinu hafa mætt talsverðri andstöðu Seyðisfirðinga.Umræður mynduðust um leyfið á Facebook-síðu Vár - Félags um vernd fjarðar í gær. Maður, sem titlaði sig sem starfsmann Kaldvíkur á Facebook, skrifaði þar eftirfarandi: > „Sama fólkið var á móti Norrænu, svo Síldarvinnslunni og skemmtiferðaskipunum. Nú er það fiskeldið. Á sama tíma getur þetta fólk ekki rekið sjoppu og tæp 90% íbúa eru á bótum eða á launum hjá hinu opinbera. Fiskeldið er augljóslega ekki vandamálið.“ Athugasemdinni