Í gær var eitt ár liðið síðan Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands í Madríd á Spáni, afhenti Filippusi VI. Spánarkonungi trúnaðarbréf sitt við athöfn sem verið hefur óbreytt frá því á 18. öld. Morgunblaðið tók hús á sendiherra sem sagði af lífi sínu og starfi auk þess að ræða menningartengsl þjóðanna tveggja.