Tvær þyrlur Landhelgisgæslu Íslands eru í útkalli á mörkum íslenskrar efnahagslögsögu.Skipstjóri erlends þjónustuskips hafði samband við Landhelgisgæsluna í nótt vegna veikinda skipverja. Skipið var þá töluvert út fyrir 200 mílna efnahagslögsögu Íslands.„Þyrlusveitin var svo kölluð út klukkan tíu og skipið beðið um að halda nær landi,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslu Íslands.Þyrlur Landhelgisgæslunnar héldu að skipinu um hálf tólf. Sökum mikillar fjarlægðar við land var talið skynsamlegt að þær væru tvær; önnur til að sinna útkallinu og hin til vara.„Þetta er töluvert langt flug. Það er ekkert svakalega algengt að það sé verið að sinna hífingum við mörk efnahagslögsögunnar,“ segir Ásgeir.Þyrlurnar komu að skipinu á öðrum tímanum. Veiki skipverjinn verður hífður