Jökull SK-16 sökk í Hafnarfjarðarhöfn í nótt. Þetta er í þriðja sinn sem báturinn sekkur í höfninni á sex árum. Fyrst sökk hann í Síðast sökk hann í september fyrir ári síðan og var þá lyft og dælt úr honum. Jökull er 80 tonna trébátur, smíðaður í Þýskalandi árið 1959. Hann er gerður út frá Sauðárkróki af útgerðinni Gamli og synir ehf. Hann hefur verið bundinn óhreyfður við bryggju árum saman.Jökull-SK, 80 tonna trébátur, sökk í Hafnarfjarðarhöfn í nótt. Báturinn hefur sokkið þrisvar sinnum á sex árum. Báturinn hefur verið bundinn við bryggju óhreyfður.Guðmundur Fylkisson, sem er í hafnarstjórn, segir að báturinn hafi verið farinn að síga í gær og því voru settar upp dælur.„Ég kíkti hérna niður á höfn um kvöldmatarleytið og þá var dælan í gangi. Hann var þá búinn að lyftast um einhverja 15