Lögregla var kölluð til 17. júlí eftir að konan leitaði sér aðstoðar á bráðamótttöku. Maðurinn fylgdi konunni á bráðamótttöku og var handtekinn eftir að starfsmenn gerðu lögreglu viðvart. Konan kvaðst í fyrstu hafa veitt sér áverkana sjálf með því að brjóta mjólkurglas á höfði sér.Samkvæmt bráðabirgðavottorði vaknaði aftur á móti strax sterkur grunur um að hún hafi orðið fyrir líkamsárás með vopni. Læknir mat áverka hennar lífshættulega. Konan hlaut höfuðkúpubrot, kjálkabrot og brot á andlitsbeinum. VISSI EKKI HVORT HÖGGIN HEFÐU VERIÐ VEITT MEÐ HENDI EÐA ÁHALDI Í skýrslutöku á slysadeild sagðist konan hafa rifist við kærasta sinn fyrr um daginn og hann farið til vinar síns í kjölfarið. Hann hafi fyrst komið heim um tvöleytið um nótina. Hann hafi þá veist að henni með ofbeldi.Hann hafi v