Leiðtogar BRICS-ríkjanna, þar á meðal Kína, Indlands og Rússlands, kölluðu eftir stillingu í Miðausturlöndum á fundi sínum sem lauk í morgun. Íranar og Sameinuðu arabísku furstadæmin studdu líka ályktunina sem beinist að Bandaríkjunum. Hvað er BRICS? BRICS er bandalag sem var stofnað árið 2009 til að auka áhrif ríkja þess í alþjóðastofnunum á kostnað vestrænna þjóða.Upphaflega voru Brasilía, Rússland, Indland, Kína og Suður-Afríka í bandalaginu en síðan hafa Egyptaland, Eþíópía, Indónesía, Íran og Sameinuðu arabísku furstadæmin.Rússar og Kínverjar hafa einkum viljað nýta þetta bandalag til að minnka áhrif Vesturlanda í heiminum, meðan Indland hefur frekar viljað brúa bil þar á milli.Leiðtogar ríkjanna héldu fund á Indlandi um helgina þar sem meðal annars var rætt um aukið samstarf BRICS-rí