Sex látnir í ferjuslysi og yfir 100 saknað

Sex eru látnir eftir að ferja lenti í sjávarháska í Jövuhafi í nótt í slæmu veðri og miklum öldugangi.Ferjan var á leið frá eyjunni Jövu til Borneo með 243 farþega og áhöfn um borð.Samband slitnaði við ferjuna fyrr í nótt og leitar- og björgunaraðgerðir hófust strax. 107 hefur verið bjargað en um 130 manns er enn saknað.Um 300 manns taka þátt í björgunaraðgerðunum en aðstæður til leitar eru erfiðar vegna öldugangs.
Sex látnir í ferjuslysi og yfir 100 saknað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd