Katla Guðnadóttir byrjaði að safna húðflúrum 18 ára gömul. Eitt þeirra er fyrir foreldra hennar. Annað er persónan Eyrnaslapi úr Bangsímon-sögunum. Enn annað múmínálfur en svo má sjá gleymérei og fiðrildi bregða fyrir á upphandleggjunum. Eitt húðflúranna vekur sérstaka eftirtekt: „One day at a time“ með skrautskrift. Er það nýtt? „Nei,“ svarar Katla. Hún segist hafa haft þetta hugarfar –...