Lögreglan stöðvaði samkvæmi í Sykursalnum í gærkvöld vegna brots á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Þetta segir Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík.Heimir segir að samkvæmið hafi verið bjórkvöld á vegum framhaldsskóla. Lögreglu hafi borist tilkynning um að þar væri mikil drykkja og ungmenni. Það hafi reynst rétt og einnig hafi komið í ljós að dyravörður staðarins væri án réttinda.Lögregla hafi lokað staðnum og vísað öllum út. Heimir segir málið í vinnslu og verða rannsakað. Það geti leitt til þess að einhvers konar viðurlögum verði beitt, enda þurfi rekstraraðilar skemmti- og veislusala að fylgja lögum og reglum.