Lægð nálgast landið úr suðvestri og beinir mildara lofti til landsins, en í nótt frysti víða norðaustantil á landinu.Þá er austan og suðaustan kalda og rigningu spáð í dag, en strekkingi með suðurströndinni. Hægari vindur á Norður- og Austurlandi og þar rignir lítið sem ekkert fyrr en í kvöld.Lægðin fer austur yfir landið í nótt. Norðlæg eða breytileg átt á morgun, yfirleitt 3-10 metrar á sekúndu. Þá verður skýjað að mestu og lítilsháttar væta, en síðdegis rofar líklega til suðvestanlands. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast suðaustantil.Á þriðjudag verður landið á milli lægða og léttir til víða, fyrst vestanlands. Á miðvikudag er næsta lægð væntanleg og þá er spáð allhvassri austanátt með talsverðri rigningu, einkum sunnan- og vestanlands.