Heildsalan Bananar inkallaði nýlega Pinkids epli vegna ólöglegs varnarefnis. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem matvara er innkölluð vegna varnarefna.Þó að varnarefni í matvælum hljómi ekkert sérstaklega vel þá eru þau í mjög mörgu og þjóna sínum tilgangi. Hvað eru varnarefni og hvaða tilgangi þjóna þau? Varnarefni eru eiturefni sem eru meðal annars notuð við ræktun kornvöru, ávaxta og grænmetis til að vernda gegn skordýrum, illgresi, myglu og öðrum skaðvöldum. Notkun þeirra er háð reglum og fyrir hvert efni eru ákveðin hámarksgildi leyfð í mismunandi matvælum.Þeim er oftast skipt í fjóra flokka, það er skordýraeitur, illgresiseyða, sveppalyf og stýriefni, sem stjórna vexti plantna.„Í tilfelli Pink lady-eplanna var um að ræða bifenthrin, efni sem er ekki leyfilegt á Íslandi og má ekki greinas