Rasmus Gjedssø Bertelsen er danskur prófessor í norðurslóðafræðum við Norðurslóðaháskólann í Tromsö í Noregi. Þar rannsakar hann og fylgist grannt með þróun mála á norðurslóðum undanfarið, ekki síst öryggis- og varnarmálum. Rasmus ólst að hluta upp á Íslandi. Hann segist furða sig á umræðunni á Íslandi um öryggis- og varnarmál, í fræðasamfélaginu og stjórnsýslu, ekki síst um vilja Bandaríkjanna til að verja Ísland. Það sé þó dæmigert fyrir umræðuna á Norðurlöndum og í Evrópu.Danskur stjórnmálafræðiprófessor telur Íslendinga misskilja varnarskuldbingingar Bandaríkjanna. Þær snúist um að verja bandaríska hagsmuni og Bandaríkin sjálf, ekki Ísland.„Við erum með, að því er mér finnst, einhverja skrítna hugmynd um að Bandaríkin hafi verið að verja Evrópu vegna okkar og til þess að vera góð við o