Eftir lok síðari heimsstyrjaldar tóku þjóðir Evrópu hægt og rólega að rétta úr kútnum, staðráðnar í að hildarleikurinn sem lauk með uppgjöf Þjóðverja 1945 skyldi ekki endurtaka sig. Til þess að tryggja það ríkti skilningur, bæði meðal stjórnmálamanna og almennings, á þörfinni fyrir að byggja upp öflugan viðbúnað og varnir gegn kjarnorkuvánni. Þessi hernaðaruppbygging stóð allt fram til loka kalda...