15 ára dreng bjargað í Bergingshafi

15 ára dreng var bjargað í Beringshafi úti fyrir ströndum St. Lawrence-eyju í síðustu viku eftir að hafa verið á reki á kili smábáts í tvo sólarhringa. Breska ríkisútvarpið greinir frá.Derek Parker Aghnaanga fór ásamt eldri bróður sínum og frænda á bátnum frá St. Lawrence-eyju að morgni föstudagsins 4. september og ætluðu þeir að koma til baka tveimur dögum síðar. Þegar þeir skiluðu sér ekki fór af stað mikil leit.Drengurinn fannst einn síns liðs á kili bátsins á mánudaginn, kaldur og hrakinn. Bátnum hafði hvolft daginn eftir að þeir fóru á haf út og bróðir hans og frændi drukknuðu. Aghnaanga hafði verið án matar og vatns í tvo sólarhringa þegar hann fannst.Móðir drengsins, Vina Kulowiyi, sagði að bræðurnir og frændinn hefðu farið til veiða til að skaffa mat fyrir íbúa í Savonga á St. Lawr
15 ára dreng bjargað í Bergingshafi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd