„Óþekkt kona“ hlaut Gullna ljónið

Danska kvikmyndin Óþekkt kona (d. Kvinde ukendt) hlaut Gullna ljónið, aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum, sem veitt voru í gær. Aðalleikkona myndarinnar, Mathilde Arcel, fékk einnig Coppa Volpi verðlaunin fyrir besta leik í kvenhlutverki.Myndin var eina kvikmyndin í fullri lengd í aðalkeppninni sem leikstýrð er af konu, May el-Toukhy. Óþekkt kona er dramatísk mynd og fjallar um danska konu sem reynir að fela ástarsamband sitt við nasista á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar.Kvikmyndin Possible Love í leikstjórn Lee Chang-dong fékk Silfurljónið á hátíðinni.Heimildamyndin NAZA, eftir Óskarsverðlaunahafana og Ísraelana Yuval Abraham og Rachel Szor, fékk sérstök verðlaun dómnefndar á hátíðinni.Myndin byggir á samtölum við 24 uppljóstrara í her og leyniþjónustu ísraelska hersins sem l
„Óþekkt kona“ hlaut Gullna ljónið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd