Yfir 20.000 gestir mættu á óvenjulegt borðhald í Búkarest í Rúmeníu í gær. Gestirnir sátu við borð sem var 5,055 metra langt og náði frá Unirii-breiðgötunni til þinghússins.Markmiðið með uppákomunni var tvíþætt. Að slá eldra met í Heimsmetabók Guinness fyrir lengsta borð í heimi sem búið er til úr endurunnu efni og einnig að safna fjárframlögum fyrir geðdeild fyrir börn sem verður á Obregia-spítalanum í Búkarest.Það tókst að slá heimsmetið, en fyrra met fyrir lengsta borð í heimi úr endurunnu efni var 2.782 metra langt og það heimsmet var sett í rúmensku borginni Alba Iulia á síðasta ári. MIKIL ÞÖRF FYRIR GEÐHEILBRIGÐISÞJÓNUSTU FYRIR BÖRN Talið er að kostnaðurinn við uppbyggingu geðdeildarinnar nemi 16,5 milljónum evra og verður framkvæmdin fjármögnuð með einkaframlögum og kostun.Samkvæ