Kanadíska söngdívan Celine Dion hélt sína fyrstu tónleika í sex ár í Plenitude Arena í Nanterre, úthverfi Parísar í Frakklandi í kvöld.Hún hóf tónleikana með laginu „On ne change pas“ og var augljóslega hrærð þar sem hún stóð á sviðinu fyrir framan 30.000 áhorfendur. Franska dagblaðið Le Parisien sagði að fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna Michelle Obama hefði verið meðal gesta á tónleikunum.Tónleikarnir eru þeir fyrstu af sextán sem Dion verður með í september og október og þúsundir aðdáenda eru komnir sérstaklega til borgarinnar til að fara á tónleika.Parísarborg tók vel á móti konu sinni og aðdáendum hennar og fjöldi viðburða hefur verið skipulagður í borginni Dion til heiðurs, svo sem búningakeppni, risakaraoke og siglingar tileinkaðar henni á Signu.Þá hefur nafni lestarstöðvarinnar sem þ