Árásir á almenna borgara í Úkraínu

Að minnsta kosti níu voru drepnir og sextíu eru særðir eftir árásir Rússa í Úkraínu í dag. Þar af særðust 37 í árás á fjölbýlishús í Odessu og tveggja er saknað. Árásirnar voru einnig gerðar á matvöruverslun og tvær bensínstöðvar. Rússar hafa í auknum mæli gert árásir á bensínstöðvar undanfarið, bæði í Kyiv og við hraðbrautir.Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, kallar eftir viðeigandi viðbrögðum frá bandamönnum Úkraínu, nú þegar Rússar hafa hert sókn sína enn frekar í Úkraínu.Næstu þríhliða viðræður milli Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna gætu farið fram í næsta mánuði segir Kyrylo Budanov, skrifstofustjóri forsetaembættis Úkraínu og fyrrverandi yfirmaður leyniþjónustu hersins (HUR).Kyiv Independent segir frá því að Budanov hafi greint frá þessu í viðtali við fjölmiðla á ráðstefnu í Kyi
Árásir á almenna borgara í Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd