Sjúkraflug jókst um ríflega 40% í júlí samanborið við í fyrra. Ef fram fer sem horfir verður flogið yfir þúsund sinnum á árinu í sjúkraflugi. Sérhæfing læknisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu skýrir aukninguna að miklu leyti, segir Gunnar Rúnar Ólafsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri.Miðstöð sjúkraflugs á Íslandi er staðsett á Akureyri og er rekin í samvinnu Sjúkrahússins á Akureyri, Norlandair og Slökkviliðisins á Akureyri. Mikil fjölgun hefur orðið í sjúkraflugi og flutningi sjúklinga milli landshluta. Í júlí voru 121 sjúkraflug flogin.Sjúkraflug og flutningur sjúklinga mill landshluta hefur aukist mikið síðustu ár. Minna af sérhæfðri læknisþjónustu á landsbyggðinni hefur mikil áhrif.„Það er klárt mál að við erum búin að sjá aukningu í sjúkraflugi statt og stöðugt síðustu ár,“ segir Gunnar Rú