Minningarstund var haldin til minningar um Hönnuh Jane Large í Áskirkju í Reykjavík í dag. Hún var ein þriggja ungmenna sem létust í bílslysi á Krýsuvíkurvegi í lok síðasta mánaðar.Hannah Jane, sem var á nítjánda ári þegar hún lést, var írsk. Minningarstundin var á ensku og í umsjón séra Ásu Bjarkar Ólafsdóttur.Ása Björk segir að fjölskylda og vinir hafi átt fallega stund saman og þakkað fyrir líf Hönnuh, sem hafi kolfallið fyrir Íslandi þegar hún kom hingað til lands með fjölskyldu sinni fyrst fyrir tveimur árum. Fjölskylda Hönnuh sé þakklát fyrir þá umhyggju og hlýju sem hún hafi fengið frá íslensku þjóðinni eftir fráfall hennar.