Annar rafmyntamilljarðamæringur greindi frá því í dag að hann hefði jafnað 36 milljóna punda framlag, sem samsvarar um 5,8 milljörðum króna, sem er stærsta gjöf í stjórnmálasögu Bretlands, til hægriflokksins Reform UK sem Nigel Farage leiðir. Tilkynnt hafði verið um sams konar gjöf daginn áður.