Úrslit þingkosninga í Svíþjóð á morgun gætu orðið söguleg. Allar líkur eru taldar á að mjótt verði á munum milli fylkinga.Svíar ganga að kjörborðinu á morgun í afar spennandi kosningum. Þar verður meðal annars kosið um hverjir munu sitja á Riksdagen, sænska þinginu, næstu fjögur árin. Útlit er fyrir að aðeins örfá prósentustig geti ráðið því hvort rauðgræna stjórnarandstöðublokkin sigrar eða hvort núverandi minnihlutastjórn hægriflokkanna heldur völdum. HÆGRI FLOKKARNIR HAFA SAXAÐ Á FORSKOT RAUÐGRÆNU BLOKKARINNAR Marcus Oscarsson, stjórnmálaskýrandi hjá TV4 í Svíþjóð, segir að rauðgræna blokkin, ásamt Jafnaðarmönnum, hafi haft mikið forskot fram á mitt sumar. Síðan hafi hægri flokkarnir sótt í sig veðrið og núna sé þetta mjög jafnt.„Það ræðst af því að hægri flokkarnir hafa stillt saman