Óttar Guðmundsson, gagnasérfræðingur hjá Gangverk, segir mikilvægt að starfsmenn verði ekki að eins konar „kjötstykkjum“ við notkun gervigreindarinnar. Gervigreindin sé aðeins eitt tól af mörgum sem fólk hafi sér til aðstoðar í vinnu en eigi ekki að stýra vinnunni. Hann segir segir stjórnendur reglulega leita til þeirra sem vilji beita gervigreindinni en viti ekki hvernig sé best að gera það.