Þyrla gæslunnar kölluð út vegna skyndilegra veikinda göngumanns

Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út í hæsta forgangi laust eftir klukkan fjögur í dag vegna bráðra veikinda göngumanns á Snæfellsnesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og lenti með manninn á Landspítalanum núna á sjöunda tímanum.Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir björgunarsveitirnar Elliða, Klakk og Bererki hafa komið að björguninni.Maðurinn hafi verið með gönguhópi við Geithellistungur á Snæfellsnesi þegar hann veiktist skyndilega.Hvorki upplýsingafulltrúi Landsbjargar né Landhelgisgæslan gátu veitt frekari upplýsingar um líðan mannsins.
Þyrla gæslunnar kölluð út vegna skyndilegra veikinda göngumanns

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd