Sádi-Arabía hefur skrúfað fyrir mikilvæga olíuleiðslu eftir drónaárás frá Írak.Engin þjóð flytur út meiri olíu en Sádi-Arabía og um 4-5% af olíu heimsins fer alla jafna um Austur-Vestur-olíuleiðsluna. Hún er um 1.200 kílómetra löng og hefur hjálpað Sádi-Aröbum að komast hjá því að flytja olíu um Hormússund.Flutningar um sundið hafa verið erfiðir síðustu mánuði sökum árása Bandaríkjanna á Íran.Írakar hafa viðurkennt að drónaárás á leiðsluna hafi tekið á loft í landinu og hafið rannsókn á henni. Dróninn hafi komið frá svæði undir þeirra stjórn nærri landamærunum við Íran. Yfirmaður í Íraksher hefur verið rekinn í tengslum við málið. STEFNA EKKI Á HEFNDARAÐGERÐIR Sádi-Arabar hafa áður sakað Íraka um að styðja við bakið á vopnuðum hópum sem hafa beint spjótum sínum að olíuinnviðum í landinu