Bandaríska staðgöngumóðirin McKenna West hefur staðið í hörðum deilum við Omar Ahmed og Nausheen Gilkar sem hún gekk með barn fyrir.Ahmed og Gilkar eru líffræðilegir foreldrar barnsins en höfðu ráðið West til að ganga með það í Kaliforníu. Þegar í ljós kom að barnið væri með alvarlegan hjartagalla í tuttugu vikna skoðun báðu þau West um að rjúfa þungunina.West neitaði því og flúði til Texas þar sem þungunarrof er nær alfarið ólöglegt. RUMI EÐA GABRIEL? Hún fæddi dreng í Texas 12. ágúst með vanþroska vinstra hjarta, sem veldur því að hjartað getur ekki dælt nægu blóði til líkamans. Foreldrar drengsins hafa nefnt hann Rumi en staðgöngumóðirin kallar hann Gabriel.Dómstóll í Kaliforníu hafa veitt Ahmed og Gilkar forræði yfir barninu og dómstóll í Texas gaf út nálgunarbann á hendur staðgöngu