„Hefndarkjóll“ Díönu prinsessu á uppboð í desember

„Hefndarkjóll“ Díönu prinsessu verður boðinn upp í desember. Hann er metinn á hátt í 40 milljónir íslenskra króna. Hún klæddist kjólnum sama dag og fyrrverandi eiginmaður hennar, Karl Bretaprins, viðurkenndi í sjónvarpsviðtali að hafa átt í ástarsambandi meðan þau voru gift. BRESKU DAGBLÖÐIN TEPPALÖGÐ MEÐ MYNDUM AF DÍÖNU Í KJÓLNUM Augnablikið fellur mörgum seint úr minni. 29. júní 1994 steig Díana prinsessa út úr bíl við Serpentine-galleríið í Lundúnum. Hún klæddist stuttum, svörtum, aðsniðnum silkikjól frá hönnuðinum Christina Stambolian. Kjóllinn var fleginn, hún var með berar axlir og stórt demantshálsmen.Tímasetningin var engin tilviljun. Fyrr sama kvöldið hafði viðtal við Karl, þá Bretaprins, verið sýnt í sjónvarpinu. Þar viðurkenndi hann að hafa átt í ástarsambandi við aðra konu m
„Hefndarkjóll“ Díönu prinsessu á uppboð í desember

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd