Áætlað er að stækka verknámshús Fjölbrautaskóla Suðurnesja um 1.800 fermetra. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, undirrituðu viljayfirlýsingu þess efnis í dag. Áformað er að framkvæmdir hefjist upp úr áramótum.Þetta segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands.„Með stækkuninni er stefnt að því að bæta aðstöðu nemenda og kennara, efla verk- og starfsnám á Suðunesjum og í nærsveitum og styrkja tengsl náms við þarfir atvinnulífsins á svæðinu,“ segir þar.Þörf hefur verið á að bæta aðstöðu Fjölbrautaskóla Suðurnesja í fjölda ára. Í apríl á þessu ári sagði þáverandi skólameistari skólans, Kristján Ásmundsson, af störfum vegna húsnæðismálanna sem hann sagði nauðsynlegt að gera úrbætur á.Ríkissjóður greiðir 60% stofnkostnaðar stækkunar v