Jón Frímann Jónsson sem haslað hefur sér völl með skeleggum skrifum um jarðhræringar á samfélagsmiðlinum Facebook hefur ákveðið að segja skilið við miðilinn. Hann segir fréttir af gervigreind og auglýsingasölu fyrirtækisins þar sem kynferðisofbeldi gegn börnum bregði fyrir sé um að kenna. Jón vonar að lesendur muni fylgja honum yfir á nýja samfélagsmiðla.