Opinbera orkufélagið, Sev, hefur óskað eftir skýrslu frá færeyskum sérfræðingi um möguleika á nýtingu á kjarnorku í Færeyjum. Greint er frá þessu á vef Sev.Þar segir að eitt af hlutverkum byggingarnefndar SEV sé að tryggja matvælaöryggi og að nægileg raforka sé til í Færeyjum til að mæta framtíðarþörfum samfélagsins. Í því skyni hafi byggingarnefndin óskað eftir skýrslunni. Í byggingarnefndinni sitja þrír nefndarmenn auk stjórnar Sev.Í skýrslunni er fjallað um kosti, galla og áskoranir við nýtingu á kjarnorku innan færeyska raforkukerfisins. Johan Paul Magnussen, doktor í kjarnorkuvísindum sem starfar hjá bresku kjarnorkustofnuninni, er að baki henni.„Við höfum ekki farið ítarlega yfir drögin í nefndinni ennþá,“ er haft eftir Heðni Mortenssen, bæjarstjóra Þórshafnar. „En ef við ætlum að ei