Geimsteinn fagnar fimmtíu ára afmæli um þessar mundir en þessi elsta starfandi tónlistarútgáfa og stúdíó landsins hefur verið rekin á sömu kennitölu alla tíð. Hjónin Rúnar Júlíusson og María Baldursdóttir settu Geimstein á laggirnar en nú sjá synir þeirra, Baldur og Júlíus, um reksturinn.