PISA-könnunin 2025 og menntakerfið voru til umræðu í Vikulokunum fyrir hádegi. Niðurstöður PISA-könnunarinnar voru kynntar á þriðjudag. Frammistaða íslenskra grunnskólabarna hefur aldrei mælst eins slæm.Nemendahópar eru töluvert fjölbreyttari en áður með tilheyrandi áskorunum, segir kennari við Árbæjarskóla. PISA-könnunin og menntakerfið voru tekin fyrir í Vikulokunum. MENNTAKERFIÐ MEGI STYÐJA BETUR VIÐ STRÁKA Halla Stella Sveinbjörnsdóttir sálfræðinemi gerir athugasemdir við framkvæmd könnunarinnar.„Mér finnst henni vera svolítið bara hent í okkur unga fólkið, sem sýnir kannski taktinn í samfélaginu í dag. Við erum í þvílíkum hraða í öllu og mættum alveg hægja á okkur. Það er svo persónubundið hjá nemendum hvernig þeir taka í svona aðstæður,“ segir hún.Undirbúningurinn sé ekki nægur.„Þ